Hjálmar Örn Jóhannsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 5. maí 2024 kl. 22:15 eftir Cinquantecinq (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. maí 2024 kl. 22:15 eftir Cinquantecinq (spjall | framlög) (Bjó til síðu með „{{Persóna | nafn = Hjálmar Örn Jóhannsson | fæðingardagur = {{fæðingardagur og aldur|1973|10|19}} | þjóðerni = Íslenskur | önnur_nöfn = Hjammi<ref>https://nlfi.is/greinasafn/yfirheyrslan-hjalmar-orn/</ref> | starf = Grínisti<br>Skemmtikraftur<br>Hlaðvarpsstjórnandi | maki = Ljósbrá Logadóttir | börn = 4 | vefsíða = {{URL|https://www.instagram.com/hjalmar...“)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Hjálmar Örn Jóhannsson
Fæddur19. október 1973 (1973-10-19) (50 ára)
ÞjóðerniÍslenskur
Önnur nöfnHjammi[1]
StörfGrínisti
Skemmtikraftur
Hlaðvarpsstjórnandi
MakiLjósbrá Logadóttir
Börn4
Vefsíðawww.instagram.com/hjalmarorn110/

Hjálmar Örn Jóhannsson (f. 19. október 1973) er íslenskur skemmtikraftur, hlaðvarpsstjórnandi og leikari. Hjálmar varð fyrst þjóðþekktur í gegnum snjallsímaforritið Snapchat þar sem hann hafði mörg þúsund fylgjendur.[2][3]

Hjálmar stýrir hlaðvarpinu Hæhæ ásamt vini sínum Helga Jean Claessen sem hóf göngu sína árið 2019[3]. Árið 2023 gáfu þeir saman út spilið Heita sætið.[4] Hjálmar lék í kvikmyndinni Fullir vasar (2018) eftir Anton Sigurðsson. Árið 2007 gáfu Hjálmar og Helgi Jean út bókina Kon­ur eru aldrei ham­ingju­sam­ar því þær eru með svo litl­an heila - og karl­ar rosa pirr­andi sem var grín-ádeila á bók rithöfundarins Þorgríms Þrá­ins­son­ar, Hvernig ger­irðu kon­una þína ham­ingju­sama?.[5]

Hjálmar hefur starfað sem skemmtikraftur og leikur þá oft karakter sem kallast Hvítvínskonan[6][3]. Einnig hefur Hjálmar starfað sem veislustjóri og oft með vinkonu sinni Evu Ruzu Miljevic.[7][8][9]

Einkalíf

Sambýliskona Hjálmars síðan 2013 er Ljósbrá Logadóttir. Þau eiga tvö börn saman. Hjálmar á tvær dætur úr fyrra hjónabandi.[10]

Hjálmar er yfirlýstur stuðningsmaður enska knattspyrnufélagsins Tottenham Hotspur.[11]

Hjálmar er sonur Jóhanns J. Jóhannssonar stofnanda bílaumboðsins Brimborgar en Hjálmar starfaði þar áður fyrr sem bílasali.[12][13]

Tilvísanir

  1. https://nlfi.is/greinasafn/yfirheyrslan-hjalmar-orn/
  2. „Hjálmar: „Ég var með skelfileg laun, en aldrei liðið betur í vinnunni". DV. 12. október 2017. Sótt 5. maí 2024.
  3. 3,0 3,1 3,2 Pétursdóttir, Ása Ninna (1. maí 2021). „Hjálmar Örn: „Ást er aukavinna, en þú getur fengið vel útborgað" - Vísir“. visir.is. Sótt 5. maí 2024.
  4. Óskarsdóttir, Svava Marín (12. janúar 2023). „Hjálpaði manni að opna á sam­ræður og „fleira" á stefnu­móti - Vísir“. visir.is. Sótt 5. maí 2024.
  5. „Í samkeppni við Þorgrím Þráinsson“. www.mbl.is. Sótt 5. maí 2024.
  6. Daðason, Kolbeinn Tumi (12. maí 2020). „Hvítvínskonan var gestur á neyðarfundi almannavarna - Vísir“. visir.is. Sótt 5. maí 2024.
  7. „Starfsmenn Árvakurs skemmtu sér konunglega“. www.mbl.is. Sótt 5. maí 2024.
  8. Veitingabransanum, Markaðurinn í (5. maí 2022). „Glæsileg árshátíð Ölgerðarinnar í Prag – Myndir“. Veitingageirinn.is - Fréttavefur um mat og vín. Sótt 5. maí 2024.
  9. „2007 stemning á árshátíð Ölgerðarinnar“. www.mbl.is. Sótt 5. maí 2024.
  10. „Hjálmar og Ljósbrá ástfangin í níu ár“. www.mbl.is. Sótt 5. maí 2024.
  11. „Fótbolti.net“. fotbolti.net. Sótt 5. maí 2024.
  12. „Hjálmar: „Ég var með skelfileg laun, en aldrei liðið betur í vinnunni". DV. 12. október 2017. Sótt 5. maí 2024.
  13. Brimborg. „Brimborg bílaumboð | Bifreiðaumboð“. Brimborg. Sótt 5. maí 2024.

Fólk fætt árið 1973