Halla Tómasdóttir
Halla Tómasdóttir | |
---|---|
Forseti Íslands (kjörin) | |
Tekur við embætti 1. ágúst 2024 | |
Forsætisráðherra | Bjarni Benediktsson |
Forveri | Guðni Th. Jóhannesson |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 11. október 1968 Reykjavík, Ísland |
Maki | Björn Skúlason |
Börn | 2 |
Halla Tómasdóttir (fædd í Reykjavík 11. október 1968) verður 7. forseti Íslands.
Hún hefur starfað sem rekstrarhagfræðingur, kennari og fyrirlesari á alþjóðavettvangi.
Menntun[breyta | breyta frumkóða]
Halla útskrifaðist með verslunarpróf frá Verslunarskóla Íslands árið 1986. Hún var skiptinemi í Bandaríkjunum og lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Halla lauk BS-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og mannauðsmál frá Auburn University at Montgomery árið 1993.[1] Því næst lauk hún MBA-gráðu með áherslu á alþjóðleg samskipti og tungumál frá Thunderbird School of Global Management árið 1995.[2] Halla stundaði um nokkura ára skeið nám til doktorsgráðu við Cranfield University í Bretlandi þar sem hún lagði stund á rannsóknir í leiðtogafræði.
Starfsferill[breyta | breyta frumkóða]
Að loknu námi í Bandaríkjunum starfaði Halla við mannauðsmál og stjórnun hjá Pepsi og M&M/Mars.[3] Eftir 10 ára dvöl í Bandaríkjunum flutti hún aftur til Íslands þar sem hún starfaði sem mannauðsstjóri hjá Íslenska útvarpsfélaginu í eitt ár áður en hún gekk til liðs við Háskólann í Reykjavík, sem þá var nýstofnaður. Þar kom hún að uppbyggingu skólans, setti á fót stjórnendaskóla og símenntun HR og kenndi nemendum á öllum aldri umbreytingastjórnun og stofnun og rekstur fyrirtækja.
Halla tók við stöðu framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs árið 2006[4] en sagði þar upp störfum árið 2007 til að stofna Auði Capital með það að markmiði að koma með aðra og mannlegri nálgun inn í fjármálageirann. Fyrirtækið komst klakklaust í gegnum efnahagshrunið árið 2008 en í kjölfar hrunsins tók Halla virkan þátt í umræðum og verkefnum sem sneru að uppbyggingu Íslands, sem að þótti umdeilt þar sem að fólk tengdi hana oft við að bera ábyrgð á hruninu og að vera ein af útrásarvíkingunum.[5] Halla var einn af níu stofnendum Mauraþúfunnar sem hrinti í framkvæmd Þjóðfundinum árið 2009, þar sem slembiúrtak íslensku þjóðarinnar kom saman í Laugardalshöll til að ræða þau grunngildi og þá framtíðarsýn sem myndi varða leið uppbyggingar í kjölfar hrunsins.
Árið 2015 skipulagði Halla alþjóðlegu jafnréttisráðstefnuna Inspirally WE2015 (Women Empowerment) í Hörpu. Þar komu stjórnmálamenn, leiðtogar í viðskiptalífinu, fræðimenn og fleiri saman og leituðu leiða til raunverulegra framfara þegar kemur að jafnrétti kynjanna.[6][7]
Halla hefur m.a. hlotið FKA-viðurkenninguna, jafnréttisviðurkenningu Kópavogs[8] og árið 2009 var hún ásamt Kristínu Pétursdóttur valin kvenfrumkvöðull Evrópu af Cartier, McKinsey og INSEAD.[9]
Fjölskylda[breyta | breyta frumkóða]
Halla er gift Birni Skúlasyni viðskiptafræðingi og börn þeirra eru Tómas Bjartur og Auður Ína. Foreldrar Höllu eru Tómas Björn Þórhallsson og Kristjana Sigurðardóttir.
Forsetaframboð[breyta | breyta frumkóða]
2016[breyta | breyta frumkóða]
Halla tilkynnti um framboð sitt til forseta Íslands 17. mars 2016. Halla leggur áherslu á innleiðingu þeirra gilda sem þjóðin sameinaðist um á Þjóðfundinum 2009. Það eru gildin heiðarleiki, jafnrétti, réttlæti og virðing. Halla leggur einnig áherslu á að Ísland haldi áfram að vera í fararbroddi í jafnréttismálum og verði fyrsta landið til að brúa kynjabilið.[10]
2024[breyta | breyta frumkóða]
Halla tilkynnti framboð sitt til embættis forseta Íslands 17. mars 2024.[11] Halla var kjörin forseti með 73.182 atkvæðum eða með 34,1% fylgi. [12] Halla tekur við embætti forseta Íslands af Guðna Th Jóhannessyni þann 1.ágúst næstkomandi.
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ Hólmfríður Gísladóttir (22. mars 2024). „Þverneitar að hafa freistast til að fegra ferilskrána“. Vísir.is.
- ↑ „Mannabreytingar hjá Íslenska útvarpsfélaginu“. Morgunblaðið: D12. 29. janúar 1998.
- ↑ „Halla Tómasdóttir | Council for Inclusive Capitalism“ (bandarísk enska). Sótt 7. maí 2024.
- ↑ Helgadóttir, Ragnhildur (25. mars 2024). „Halla nú ósammála mörgu sem hún beitti sér fyrir sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs“. Heimildin. Sótt 7. maí 2024.
- ↑ Gunnarsson, Björgvin (27. maí 2024). „Einar minnir á fortíð Höllu Tómasdóttur: „Var í forystu útrásarkórsins fyrir hrun" -“. Mannlíf.is. Sótt 11. júní 2024.
- ↑ Gabriela Mueller (30. júní 2015). „Iceland is doing something right“.
- ↑ „Ráðstefnan WE2015 í Hörpu“. Ríkisútvarpið. 19. júní 2015.
- ↑ Jafnréttisstofa. „Halla Tómasdóttir hlaut jafnréttisviðurkenningu Kópavogs“. Jafnréttisstofa. Sótt 7. maí 2024.
- ↑ „Women's Forum Global Meeting Whitebook 2009“.
- ↑ „Halla Tómasdóttir býður sig fram“. www.mbl.is. Sótt 7. maí 2024.
- ↑ Hrólfsson, Ragnar Jón (17. mars 2024). „Halla Tómasdóttir býður sig fram til forseta - RÚV.is“. RÚV. Sótt 7. maí 2024.
- ↑ Halla Tómasdóttir verður forseti Íslands Rúv, 2. júní 2024