(Go: >> BACK << -|- >> HOME <<)

Fara í innihald

Aðgerð Pólstjarna

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 22. september 2023 kl. 17:29 eftir TKSnaevarr (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. september 2023 kl. 17:29 eftir TKSnaevarr (spjall | framlög) (TKSnaevarr færði Aðgerð Pólstjarnan á Aðgerð Pólstjarna: Sbr. fjölmiðlaumfjöllun og titill bókar um málið.)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Aðgerð Pólstjarnan er viðamikil lögregluaðgerð á vegum fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, Ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunnar og lögregluliða í Danmörku, Noregi, Færeyjum, Þýskalandi og Hollandi í gegnum Europol. Aðgerðin beindist gegn umfangsmiklu smygli á fíkniefnum til Íslands með seglskútu og leiddi til þess að fjöldi manns var handtekinn bæði á Íslandi, Noregi og í Danmörku. Þrír voru handteknir þegar skútan kom að landi á Fáskrúðsfirði að morgni 20. september 2007 með 50-60 kíló af amfetamíni, sem er mesta magn örvandi fíkniefna sem náðst hefur í einni aðgerð á Íslandi.


  Þessi Íslandsgrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.