2024
Appearance
Árþúsund: | 3. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Árið 2024 (MMXXIV í rómverskum tölum) er í gregoríanska tímatalinu hlaupár sem byrjar á mánudegi.
Atburðir
Janúar
- 1. janúar:
- Egyptaland, Eþíópía, Íran, Sádi-Arabía og Sameinuðu arabísku furstadæmin gerðust aðilar að BRICS.
- Fylkið Vestfold og Þelamörk í suður-Noregi var lagt niður og skiptist í Vestfold og Þelamörk eins og fyrir 2020.
- Artsak-lýðveldið var leyst upp og landsvæði þess að fullu limað inn í Aserbaísjan.
- Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ákvað að bjóða sig ekki fram í komandi forsetakosningum.
- Landgræðslan og Skógræktin sameinuðust í stofnunina Land og skógur.
- 2. janúar - Ísraelsher réð næstráðanda Hamas-samtakana, Saleh Al-Arouri, af dögum í drónaárás í Beirút, Líbanon.
- 3. janúar - 84 létust í sprengjuárás í Íran við minningarathöfn helgaðri hershöfðingjanum Qasem Soleimani. Íslamska ríkið lýsti yfir ábyrgð.
- 5. janúar - Lægsta hitastigið á Norðurlöndum í 25 ár mældist í norður-Svíþjóð þegar hitinn fór niður fyrir -44 C°.
- 9. janúar - Gabriel Attal var útnefndur forsætisráðherra Frakklands. Hann tók við af Élisabeth Borne sem sagði af sér. Attal varð yngsti forsætisráðherra í sögu landsins og fyrsti samkynhneigði maðurinn til að gegna embættinu.
- 10. janúar – 28. janúar: Evrópumótið í handbolta karla hófst í Þýskalandi.
- 11. janúar - Jökulhlaup varð í Grímsvötnum.
- 12. janúar - Bandaríkin og Bretland gerðu loftárásir á Jemen vegna árása Hútí-fylkingarinnar á vöruflutningaskip á Rauðahafi.
- 13. janúar - Lai Ching-te var kosinn forseti Taívans.
- 14. janúar –
- Eldgos hófst að nýju við Sundhnúksgíga/Hagafell. Önnur sprunga opnaðist nær Grindavík og eyðilagði hraun nokkur hús.
- Margrét Þórhildur Danadrottning afsalaði sér krúnunni og Friðrik Danakrónprins varð konungur Danmerkur.
- 16. janúar –
- Einar Þorsteinsson varð borgarstjóri Reykjavíkur. Dagur B. Eggertsson lét af störfum.
- Engin gosvirkni sást í gosinu í námunda við Grindavík.
- 19. janúar: Fyrsta geimfar Japans lenti á tunglinu.
- 26. janúar - Fyrsta aftakan fór fram í Bandaríkjunum þar sem niturgas var notað.
Febrúar
- 3. febrúar: Bandaríkin gerðu árásir á 85 skotmörk í Sýrlandi og Írak eftir að sveitir hliðhollar Íran gerðu árás á bandaríska herstöð í Jórdaníu.
- 4. febrúar: Nayib Bukele var endurkjörinn forseti El Salvador.
- 6. febrúar: Skógareldar í Chile; yfir 100 létust.
- 8. febrúar: Eldgos hófst við Sundhnúk á svipuðum stað og í desember árið áður. Hraun fór yfir hitaveitulögn og urðu Suðurnes heitavatnslaus. Gosinu lauk eftir sólarhring.
- 10. febrúar: Katarska karlalandsliðið í knattspyrnu vann Asíukeppni karla í knattspyrnu þegar liðið sigraði Jórdaníu í úrslitum.
- 11. febrúar:
- Fílbeinstrendíska karlalandsliðið í knattspyrnu vann Afríkukeppnina þegar liðið lagði Nígeríu 2:1 í úrslitum.
- Alexander Stubb var kjörinn forseti Finnlands.
- 12. febrúar: Heitt vatn komst á á Suðurnesjum eftir að ný heitavatnslögn var lögð eftir að hraun skemmdi fyrri lögn.
- 16. febrúar: Aleksej Navalnyj, rússneskur stjórnmálamaður og andstæðingur Vladímír Pútín lést í fangelsi.
- 29. febrúar: Ísraelsher gerði árás á fólk í Gasa sem hópaðist að bílum sem dreifðu matvælum.
Mars
- 2. mars: Hera Björk Þórhallsdóttir vann Söngvakeppnina 2024 með lagið Scared of Heights.
- 3. mars: Stjórnvöld á Haítí lýstu yfir neyðarástandi eftir að gengi náð yfirráðum yfir svæðum í höfuðborginni. Þau kröfðust uppsagnar forsætisráðherrans Ariel Henry.
- 7. mars: Svíþjóð gekk formlega í NATÓ.
- 17. mars: Forsetakosningar í Rússlandi.
- 31. mars: Búlgaría og Rúmenía verða aðilar að Schengen-samstarfið í gegnum flug- og siglingaleiðir.
Apríl
Maí
- 7. maí - 11. maí: Eurovision er haldið í Malmö, Svíþjóð.
- 20. maí - Lai Ching-te tekur við embætti forseta Taívans.
Júní
- 1. júní - Forsetakosningar fara fram á Íslandi.
- 14. júní - 14. júlí: Evrópukeppnin í knattspyrnu og Copa América verða haldnar á sama tíma.
- Tálknafjarðarhreppur sameinast Vesturbyggð.
Júlí
- 26. júlí - 11. ágúst: Sumarólympíuleikarnir fara fram í París.
Ágúst
September
- 1. september: Nýr biskup Íslands verður vígður.
Október
Nóvember
- 5. nóvember: Forsetakosningar verða haldnar í Bandaríkjunum.
Desember
Dáin
- 2. janúar - Auður Haralds, rithöfundur.
- 4. janúar - Glynis Johns, bresk leikkona.
- 7. janúar - Franz Beckenbauer, þýskur knattspyrnumaður og þjálfari.
- 9. janúar - Guðrún Jónsdóttir, borgarfulltrúi og baráttukona fyrir kvenréttindum.
- 4. febrúar - Hage Geingob, forseti Namibíu.
- 6. febrúar - Sebastián Piñera, forseti Chile.
- 12. febrúar - Karl Sigurbjörnsson (f. 1947), biskup Íslands frá 1998 til 2012.
- 16. febrúar - Aleksej Navalnyj, rússneskur stjórnmálamaður og andstæðingur Vladímír Pútín.
- 20. febrúar - Andreas Brehme, þýskur knattspyrnumaður.
- 29. febrúar - Brian Mulroney, kanadískur stjórnmálamaður.
- 6. mars - Björgvin Gíslason, tónlistarmaður.
- 10. mars - Páll Bergþórsson, veðurstofustjóri.
- 11. mars - Matthías Johannessen, ljóðskáld, rithöfundur og ritstjóri Morgunblaðsins.