Umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu
Mál sem varða aðildarumsóknina á 144. löggjafarþingi (2014-2015)
- Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
- Fyrirspurn til utanríkisráðherra um kröfur Evrópusambandsins um að íslensk stjórnvöld skýri stöðu aðildarviðræðna.
Mál sem varða aðildarumsóknina á 143. löggjafarþingi (2013-2014)
- Skýrsla utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
- Stjórnartillaga utanríkisráðherra um að draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka. Tillagan var ekki afgreidd úr utanríkismálanefnd.
- Þingsályktunartillaga Jóns Þórs Ólafssonar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Tillagan var ekki afgreidd úr utanríkismálanefnd.
- Þingsályktunartillaga Katrínar Jakobsdóttur um formlegt hlé á aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins og þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræðurnar. Tillagan var ekki afgreidd úr utanríkismálanefnd.
Þingsályktunin um aðildarumsókn að Evrópusambandinu
- Þingsályktunartillaga um aðildarumsókn að Evrópusambandinu var samþykkt á Alþingi 16. júlí 2009. Ferill málsins á 137. þingi.
Mál sem varða aðildarumsóknina 2009-2013
- Á 142. löggjafarþingi lagði Össur Skarphéðinsson fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Tillagan var rædd en ekki afgreidd úr utanríkismálanefnd.
- Á 141. löggjafarþingi lagði Þorgerður K. Gunnarsdóttir fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins. Tillagan var ekki rædd. Samhliða þingsályktunartillögunni lagði Þorgerður fram frumvarp um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Frumvarpið var ekki rætt.
- Á 140. löggjafarþingi lagði Atli Gíslason fram þingsályktunartillögu um afturköllun umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Tillagan var ekki rædd. Atli lagði tillöguna fram að nýju á 141. löggjafarþingi. Tillagan var ekki rædd.
- Á 139. löggjafarþingi lagði Vigdís Hauksdóttir fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðlögunar- og viðræðuferli Íslands og Evrópusambandsins. Tillagan var rædd en ekki afgreidd úr utanríkismálanefnd. Vigdís lagði tillöguna fram að nýju á 140. löggjafarþingi. Tillagan var rædd en ekki afgreidd úr utanríkismálanefnd. Vigdís lagði tillöguna fram að nýju á 141. löggjafarþingi. Tillagan var ekki rædd.
- Á 138. löggjafarþingi lagði Unnur Brá Konráðsdóttir fram þingsályktunartillögu um afturköllun umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Tillagan var ekki rædd. Unnur lagði tillöguna fram að nýju á 139. löggjafarþingi og var hún þá rædd en ekki afgreidd úr utanríkismálanefnd.
- Á 137. löggjafarþingi lagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fram þingsályktunartillögu um undirbúning mögulegrar umsóknar um aðild að Evrópusambandinu. Málinu var vísað frá með nefndaráliti með rökstuddri dagskrá.
Ítarefni
- Vefur utanríkisráðuneytisins um aðildarviðræður Íslands og ESB 2009-2013. Vefurinn þjónar hlutverki gagnageymslu og verður ekki uppfærður þar sem hlé hefur verið gert á aðildarviðræðum. Hér er vísað í síðustu vistuðu útgáfu í vefsafni.
- Á þeim vef er m.a. að finna umfjöllun um álit meirihluta utanríkismálanefndar sem er lagt var til grundvallar í starfi samningahópanna en þar voru afmarkaðir meginhagsmunir Íslands.