„1991“: Munur á milli breytinga
Útlit
Efni eytt Efni bætt við
m →Janúar |
|||
Lína 192: | Lína 192: | ||
* [[Friðarverðlaun Nóbels|Friðarverðlaun]] - [[Aung San Suu Kyi]] |
* [[Friðarverðlaun Nóbels|Friðarverðlaun]] - [[Aung San Suu Kyi]] |
||
* [[Nóbelsverðlaun í hagfræði|Hagfræði]] - [[Ronald Coase]] |
* [[Nóbelsverðlaun í hagfræði|Hagfræði]] - [[Ronald Coase]] |
||
{{commonscat}} |
|||
[[Flokkur:1991]] |
[[Flokkur:1991]] |
Útgáfa síðunnar 12. nóvember 2015 kl. 13:23
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1991 (MCMXCI í rómverskum tölum) var 91. ár 20. aldar sem hófst á þriðjudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu.
Atburðir
Janúar
- 1. janúar - Íslenska skipaflutningafélagið Samskip hóf starfsemi.
- 1. janúar - Sigríður Snævarr var fyrst íslenskra kvenna skipuð sendiherra landsins erlendis.
- 3. janúar - Wayne Gretzky skoraði sitt sjöhundruðasta mark.
- 4. janúar - Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi meðferð Ísraela á Palestínumönnum.
- 12. janúar - Persaflóastríðið: Bandaríska þingið staðfesti lög sem heimiluðu bandaríska hernum að ráðast gegn sveitum Íraka í Kúveit.
- 13. janúar - Sovéskar sveitir réðust á höfuðstöðvar litháíska sjónvarpsins í Vilnius og felldu fjórtán óbreytta borgara en yfir 160 særðust.
- 16. janúar - Persaflóastríðið hófst með loftárásum bandaríkjamanna á Írak.
- 17. janúar - Haraldur 5. varð konungur Noregs.
- 17. janúar - Írak skaut 8 Scud-flaugum á Ísrael.
- 17. janúar - Eldgos hófst í Heklu. Það var fremur smávægilegt og er talið að varla hafi komið minni gjóska upp í nokkru eiginlegu Heklugosi á sögulegum tíma.
- 20. janúar - Skíðaskálinn í Hveradölum brann og var endurreistur ári síðar.
- 26. janúar - Borgarastyrjöldin í Sómalíu: Stjórn Siad Barre hrökklaðist frá völdum.
Febrúar
- 3. febrúar - Fárviðri gekk yfir Ísland og varð mikið eignatjón. Sterkasta vindhviða sem mælst hefur á Íslandi, 237 km/klst mældist í Vestmannaeyjum.
- 3. febrúar - Ítalski kommúnistaflokkurinn var lagður niður.
- 4. febrúar - Ísland varð fyrsta ríkið til að viðurkenna sjálfstæði Litháen.
- 7. febrúar – Fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Haítí, Jean-Bertrand Aristide, tók við embætti.
- 9. febrúar - Litháar völdu sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu.
- 20. febrúar - Þyrla landhelgisgæslunnar vann mikið björgunarafrek er allri áhöfn Steindórs GK, átta manns, var bjargað eftir að skipið strandaði undir Krýsuvíkurbjargi.
- 24. febrúar - Minnisvarði var afhjúpaður í Innri-Njarðvík um Sveinbjörn Egilsson, rektor og skáld, sem þar var fæddur.
- 27. febrúar - Íraksher hörfaði frá Kúveit. Írakar féllust á vopnahlé og samþykktu að afvopnast.
Mars
- 1. mars - Ólafsfjarðargöngin formlega opnuð. Þau voru þá lengstu veggöng á Íslandi, um 3.400 metrar.
- 3. mars - Upptaka náðist af því þegar nokkrir lögreglumenn í Los Angeles börðu á Rodney King sem var kveikjan að mestu óeirðum í sögu borgarinnar.
- 10. mars - Davíð Oddsson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, felldi Þorstein Pálsson, sitjandi formann, í formannskjöri á landsfundi flokksins.
- 10. mars - Heimastjórnarsamtökin voru stofnuð á Íslandi.
- 14. mars - Sexmenningarnir frá Birmingham, sem höfðu setið í bresku fangelsi í sextán ár vegna sprengingar á krá, voru látnir lausir er dómstóll kvað upp þann úrskurð að lögreglan hefði hagrætt eða búið til sannanir gegn þeim á sínum tíma.
- 20. mars - Stysta ræða í sögu Alþingis var flutt. Hún var svohljóðandi: „Virðulegi forseti! Álverið rísi!“ Ræðumaður var Ásgeir Hannes Eiríksson.
- 26. mars - Hópur herforingja, undir stjórn Amadou Toumani Touré, gerði stjórnarbyltingu í Malí og handtók Moussa Traore forseta.
- 27. mars - Fyrsta GSM-símtalið var flutt yfir finnska farsímanetið Radiolinja.
- 28. mars - Volkswagen Group hóf samstarf við tékkneska bílaframleiðandann Škoda automobilová.
- 31. mars - Varsjárbandalagið var leyst upp.
Apríl
- 2. apríl - Eldgos hófst í Pínatúbó á Filippseyjum.
- 4. apríl - Síðasta bindi Alþingisbóka Íslands kom út. Bindin eru 17 alls og stóð útgáfan yfir frá 1912. Í þeim segir frá atburðum á Alþingi frá 1593 til 1800.
- 9. apríl - Georgía lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 20. apríl - Alþingiskosningar voru haldnar. Fleiri listar voru í framboði en nokkru sinni, eða 11 listar alls.
- 25. apríl - Bifreið var ekið upp á Hvannadalshnúk í fyrsta skipti.
- 26. apríl - Sorpa hóf starfsemi í Reykjavík.
- 29. apríl - Fellibylur gekk yfir Bangladesh og um 138.000 manns fórust.
- 30. apríl - Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks tók við stjórnartaumunum. Davíð Oddsson varð forsætisráðherra.
Maí
- 3. maí - Síðasti þáttur sjónvarpsþáttaraðarinnar Dallas var sendur út.
- 4. maí - Sænska söngkonan Carola Häggkvist sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir Svíþjóð með laginu „Fångad av en stormvind“. Framlag Íslands var lagið „Draumur um Nínu“ sem dúettinn Stefán & Eyfi fluttu.
- 21. maí - Rajiv Gandhi, fyrrverandi forsætisráðherra Indlands, beið bana í sjálfsmorðsárás.
- 25. maí - Erik Weihenmayer var fyrsti blindi maðurinn til ad ná tindi Everestfjalls.
- 27. maí - Landsbankinn yfirtók rekstur Samvinnubankans.
- 31. maí - Alþingi kom í fyrsta sinn saman í einni deild. Það hafði starfað í tveimur deildum í 116 ár.
Júní
- 1. júní - Íslenska heimildarmyndin Verstöðin Ísland var frumsýnd í Vestmannaeyjum.
- 1. júní - Borgarkringlan var opnuð við Kringluna í Reykjavík.
- 5. júní - Dómur í Hafskipsmálinu féll í Hæstarétti.
- 12. júní - Rússar kusu Boris Jeltsín forseta.
- 17. júní - Víkingaskipið Gaia kom frá Noregi til Reykjavíkur og hafði verið á siglingu frá 17. maí.
- 20. júní - Þýska þingið ákvað að flytja stjórnarsetur landsins til Berlínar frá Bonn.
- 21. júní - Perlan í Öskjuhlíð var vígð.
- 22. júní - Á Snæfellsjökli féllu hjón niður í alldjúpa sprungu en var bjargað.
- 23. júní - Fyrsti leikurinn með Sonic the Hedgehog kom út í Japan.
- 25. júní - Slóvenía og Króatía lýstu yfir sjálfstæði frá Júgóslavíu sem leiddi til Tíu daga stríðsins.
Júlí
- 1. júlí - Varsjárbandalagið var formlega leyst upp.
- 1. júlí - Einkaleyfastofan var stofnuð á Íslandi.
- 1. júlí - Bandaríska kvikmyndin Tortímandinn 2: Dómsdagur var frumsýnd í Los Angeles.
- 17. júlí - Arnór Guðjohnsen jafnaði afrek Ríkharðs Jónssonar með því að skora fjögur mörk í landsleik í knattspyrnu gegn Tyrkjum.
- 31. júlí - Börn náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar var frumsýnd í Stjörnubíói.
Ágúst
- 1. ágúst - Börn náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, var frumsýnd.
- 10. ágúst - Keflavíkurganga á vegum herstöðvaandstæðinga var gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur.
- 11. ágúst - Fyrsti þátturinn í teiknimyndaþáttaröðinni Skriðdýrin fór í loftið í Bandaríkjunum.
- 16. ágúst - Úrkomumet varð í Reykjavík er niður komu 18 millimetrar á einni klukkustund, en það samsvarar rúmlega fjórðungi af venjulegri mánaðarúrkomu.
- 19. ágúst - Ágústvaldaránið í Sovétríkjunum: Átta sovéskir embættismenn og herforingjar rændu Mikhaíl Gorbatsjev. Boris Jeltsín hélt fræga ræðu ofan af skriðdreka við þinghúsið í Moskvu.
- 20. ágúst - Eistland lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 21. ágúst - Lettland lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 23. ágúst - Armenía lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 24. ágúst - Úkraína lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 25. ágúst - Hvíta-Rússland lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 26. ágúst - Ísland tók fyrst allra ríkja upp formlegt stjórnmálasamband við Eistland, Lettland og Litháen.
- 27. ágúst - Moldóva lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 30. ágúst - Aserbaídsjan lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 31. ágúst - Kirgistan og Úsbekistan lýstu yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
September
- 2. september - Nagornó-Karabak-lýðveldið lýsti yfir sjálfstæði.
- 8. september - Lýðveldið Makedónía varð sjálfstætt ríki.
- 9. september - Tadsjikistan lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 19. september - Frosna múmían Ötzi fannst í Ölpunum.
- 21. september - Armenía lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 24. september - Önnur hljómplata Nirvana, Nevermind, kom út.
- 28. september - Stofnað var landssamband björgunarsveita og hlaut nafnið Landsbjörg.
- 30. september - Bandaríski spjallþátturinn Charlie Rose hóf göngu sína á PBS.
Október
- 5. október - Blönduvirkjun var vígð.
- 5. október - Fyrsta útgáfa Linux-stýrikerfiskjarnans kom út.
- 11. október - Íslenska landsliðið í brids vann sigur á heimsmeistaramóti í Yokohama í Japan.
- 12. október - Vélbáturinn Jóhannes Gunnar GK fórst við Reykjanes. Björgunarbáturinn Oddur V. Gíslason frá Grindavík bjargaði tveggja manna áhöfn úr gúmmíbjörgunarbáti. Báðir skipverjar voru kaldir og þrekaðir auk þess sem annar var með áverka á brjóstholi. Áhöfn Odds V. Gíslasonar var heiðruð fyrir björgunina.
- 27. október - Túrkmenistan lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
Nóvember
- 1. nóvember - Kvikmyndin Hvíti víkingurinn eftir Hrafn Gunnlaugsson var frumsýnd.
- 1. nóvember - Bandaríska spennumyndin Ár byssunnar var frumsýnd.
- 11. nóvember - Hljómsveitin Bless hélt sína síðustu tónleika.
- 12. nóvember - Íslenska stálfélagið hf var tekið til gjaldþrotaskipta.
- 13. nóvember - Bandaríska teiknimyndin Fríða og dýrið var frumsýnd.
- 22. nóvember - Línuskipið Eldhamar GK 13 strandaði á Hópsnesi við Grindavík. Fimm af sex manna áhöfn skipsins fórust.
- 23. nóvember - Freddie Mercury, söngvari hljómsveitarinnar Queen, lýsti því yfir að hann væri með alnæmi. Hann lést degi síðar.
- 28. nóvember - Suður-Ossetía lýsti yfir sjálfstæði.
- 29. nóvember - Kvikmyndahúsakeðja Árna Samúelssonar tók upp nafnið Sambíóin.
Desember
- 1. desember - Hilmar Örn Hilmarsson hlaut Felix-verðlaunin fyrir tónlist sína í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börnum náttúrunnar.
- 4. desember - Pan Am-flugfélagið hætti störfum.
- 8. desember - Leiðtogar Rússlands, Hvíta-Rússlands og Úkraínu stofnuðu Samveldi sjálfstæðra ríkja.
- 8. desember - Rúmenar samþykktu nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu.
- 12. desember - Róttækir fyrrum félagar í Ítalska kommúnistaflokknum stofnuðu Endurstofnun kommúnistaflokksins.
- 16. desember - Kasakstan fékk sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 25. desember - Mikhaíl Gorbatsjev sagði af sér sem aðalritari sovéska kommúnistaflokksins. Afsögnin markaði endalok Sovétríkjanna.
- 26. desember - Sovétríkin voru formlega leyst upp.
Ódagsettir atburðir
- Versalaháskóli var stofnaður í Frakklandi.
- Hellirinn Sơn Đoòng var uppgötvaður í Víetnam.
- Íslenska verkfræðistofan Efla var stofnuð.
- Þróun stýrikerfisins BeOS hófst.
- Íslenska fiskeldisfyrirtækið Stofnfiskur var stofnað.
- Norska hljómsveitin Emperor var stofnuð.
- Bókmenntaverðlaunin Davíðspenninn voru veitt í fyrsta sinn.
- Bandaríska hljómsveitin Rage Against the Machine var stofnuð.
- Bandaríska hljómplötuútgáfan Maverick Records var stofnuð.
- Bandaríska tónlistarútgáfufyrirtækið Kill Rock Stars var stofnað.
- Rannsóknarstofa í kynjafræðum, RIKK, var stofnuð við Háskóla Íslands.
- Bandaríska hljómsveitin Blind Melon var stofnuð.
- Breska hljómsveitin Portishead var stofnuð.
Fædd
- 7. janúar - Eden Hazard, belgískur knattspyrnumaður.
- 14. janúar - Jeanine Mason, kúbverskur dansari.
- 22. febrúar - Robin Stjernberg, sænskur söngvari.
- 4. apríl - Jamie Lynn Spears, bandarísk leik- og söngkona.
- 22. maí - Ásgeir Þór Magnússon, íslenskur knattspyrnumaður.
- 23. maí - Lena Meyer-Landrut, þýsk söngkona.
- 28. júní - Jóhanna María Sigmundsdóttir, íslensk stjórnmálakona.
- 1. júlí - Atli Sigurjónsson, íslenskur knattspyrnumaður.
- 23. júlí - Trausti Eiríksson, íslenskur körfuknattleiksmaður.
- 2. ágúst - Hrafnhildur Lúthersdóttir, íslensk sundkona.
- 10. ágúst - Dagný Brynjarsdóttir, íslensk knattspyrnukona.
- 16. september - John and Edward (Jedward).
- 22. október - Levi Sherwood, nýsjálenskur mótorkrossmaður.
- 31. október - Marianne Hasperhoven, hollensk fyrirsæta.
- 15. nóvember - Helga Margrét Þorsteinsdóttir, íslensk frjálsíþróttakona.
- 11. desember - Anna Bergendahl, sænsk söngkona.
Dáin
- 17. janúar - Ólafur 5., konungur Noregs (f. 1903).
- 30. janúar - John Bardeen, tvöfaldur nóbelsverðlaunahafi í eðlisfræði (f. 1908).
- 1. febrúar - Jóhann Briem, íslenskur myndlistarmaður (f. 1907).
- 6. febrúar - Salvador Luria, ítalskur örverufræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1912).
- 21. febrúar - Margot Fonteyn, bresk ballerína (f. 1919).
- 10. mars - Jóhanna Kristín Yngvadóttir, íslensk myndlistarkona (f. 1953).
- 12. mars - William Heinesen, færeyskur rithöfundur (f. 1900).
- 29. mars - Lee Atwater, bandarískur stjórnmálaráðgjafi (f. 1951).
- 3. apríl - Graham Greene, enskur rithöfundur (f. 1904).
- 16. apríl - David Lean, breskur kvikmyndaleikstjóri (f. 1908).
- 16. apríl - Sergio Peresson, ítalskur fiðlusmiður (f. 1913).
- 27. apríl - Rob-Vel, franskur teiknimyndasagnahöfundur (f. 1909).
- 24. júlí - Isaac Bashevis Singer, bandarískur rithöfundur (f. 1902).
- 1. september - Hannibal Valdimarsson, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1903).
- 28. september - Miles Davis, bandarískur tónlistarmaður (f. 1926).
- 23. október - Magnús Guðbrandsson, íslenskur knattspyrnumaður (f. 1896).
- 24. október - Eugene Wesley Roddenberry, bandarískur handritshöfundur (f. 1921).
- 1. nóvember - Ásta Laufey Jóhannesdóttir, íslensk sundkona (f. 1906).
- 13. nóvember - Þorsteinn Ö. Stephensen, íslenskur leikari (f. 1904).
- 24. nóvember - Freddie Mercury, breskur söngvari og lagahöfundur (f. 1946).
- 27. nóvember - Vilém Flusser, tékkneskur heimspekingur (f. 1920).
- 1. desember - George J. Stigler, hagfræðingur (f. 1911).
- 5. desember - Richard Speck, bandarískur fjöldamorðingi (f. 1941)
Nóbelsverðlaunin
- Eðlisfræði - Pierre-Gilles de Gennes
- Efnafræði - Richard R. Ernst
- Læknisfræði - Erwin Neher, Bert Sakmann
- Bókmenntir - Nadine Gordimer
- Friðarverðlaun - Aung San Suu Kyi
- Hagfræði - Ronald Coase
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist 1991.