Forsetaframbjóðendur skjóta upp kollinum eins og gorkúlur á haug Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. mars 2024 00:10 Oliver Þórisson, Búi Baldvinsson og Húni Húnfjörð hafa allir stofnað meðmælasöfnun fyrir forsetaframboð árið 2024. Hvort þeim er öllum alvara um framboð sitt er þó óvíst. Fjórir nýir frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafa stofnað rafrænan meðmælalista fyrir framboð sitt. Frambjóðendur eru því orðnir tíu talsins og á þeim vafalaust eftir að fjölga. Á Ísland.is má sjá alla frambjóðendur til forseta undir síðunni „Meðmælasöfnun fyrir forsetaframboð 2024“. Þar fer fram rafræn meðmælasöfnun frambjóðenda og getur fólk skrifað rafrænt undir meðmæli. Það sem vekur líka athygli er að það er einstaklega auðvelt að stofna til meðmælasöfnunar fyrir forsetaframboð svo lengi sem maður stenst aldurskröfur. Í gær greindi Vísir frá því að Agnieszka Sokolowska, túlkur og verkefnastjóri af pólskum uppruna, hefði boðið sig fram. Síðan þá hefur heldur betur bæst í hópinn en þeir fjórir sem bættust við í dag eru: Oliver Þórisson, Ingvar Magnússon, Húni Húnfjörð og Búi Baldvinsson. Ekki hefur tekist að finna út úr því hvaða Ingvar Magnússon hefur boðið sig fram enda er nafnið býsna algengt. Nánar má lesa um hina þrjá frambjóðendurna hér fyrir neðan. Fyrrverandi körfuboltamaður í hjálparstarfi í Kenýa Húni Húnfjörð er fæddur árið 1977 og er menntaður viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum. Hann lék körfubolta á yngri árum með Keflavík og ÍR, hefur kennt viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri og hefur undanfarin ár unnið við að byggja upp skóla fyrir munaðarlaus börn í Kenýa. Húni skrifaði færslu um framboðið á Facebook-síðu sinni í morgun. Þar skrifaði hann „Forsetaframboð? Ég lofa að nota ne[i]tunarvaldið óspart. Forseta matarboðin verða flott og aldrei að vita nema þetta verði fyrsti forseti Íslands sem tengir við þig...þú sem ert að vakna.“ Húni Húnfjörð hefur starfað mikið í Kenýa undanfarin ár. Búi á Bessastaði Búi Baldvinsson er fæddur árið 1975 og starfar sem kvikmyndargerðarmaður. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri framleiðslufyrirtækisins Hero Productions. Hann hefur unnið að fjölda risastórra Hollywood-kvikmynda, þar á meðal Star Wars VII - The Force Awakens, The Secret Life of Walter Mitty, Noah og Stardust. Búi greindi líka frá framboði sínu á Facebook í dag. Þar skrifaði hann „Búi á Bessastaði hljómar eithvað svo fallega.“ Vilius Petrikas og Búi Baldvinsson.Vísir/Hulda Margrét Verslunarstjóri Subway í Reykjanesbæ Minna er vitað um Oliver Þórisson en hann er fæddur árið 1973 og hefur áður starfað sem verslunarstjóri hjá Subway í Fitjum í Reykjanesbæ. Forsetakosningar 2024 Forseti Íslands Tengdar fréttir Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Forsetakosningar eru handan við hornið, þar sem þjóðin velur sér fyrsta nýja forsetann frá árinu 2016. Hér í vaktinni verður fylgst með öllum helstu vendingum í kapphlaupinu um Bessastaði næstu þrjá mánuði. 1. mars 2024 09:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Trump lofar að útrýma mótmælum til stuðnings Palestínu Erlent Notaði niðrandi orð um samkynhneigða karla á lokuðum fundi Erlent Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Innlent Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Innlent Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Innlent Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Innlent Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Innlent Börnin eru fundin Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Vill kvittanir frá framboði Höllu Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Háspennubilun í Breiðholti Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Soffía er nýr skólameistari FSu Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga Tveir bílar skullu saman í Kolgrafarfirði Ungmenni kveiktu í skólabókum Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Börnin eru fundin Heilablóðfall sjaldgæfur fylgikvilli eftir ósæðarlokuskipti Efling vísar deilu við borgina til sáttasemjara Stefnir í að losunarskuldbindingar náist Andrea Kristín enn dæmd í fangelsi Lending í Nauthólsvík lengi ferðina um korter til tuttugu mínútur Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Ástþór eyðir langmestu Kosningaúrslit yfirleitt nálægt niðurstöðum kannana „Þetta er bara eins og að finna gull“ Þyrlulæknar ósáttir og Ísfirðingar fagna heitavatnsfundi Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Taldir hafa sviðsett árekstur í Hafnarfirði Myndi ekki syrgja brotthvarf neftóbaksins Fluttur með þyrlu vegna vinnuslyss á bóndabæ Flugferð aflýst eftir að þjónustubíll rakst í flugvél Sjá meira
Á Ísland.is má sjá alla frambjóðendur til forseta undir síðunni „Meðmælasöfnun fyrir forsetaframboð 2024“. Þar fer fram rafræn meðmælasöfnun frambjóðenda og getur fólk skrifað rafrænt undir meðmæli. Það sem vekur líka athygli er að það er einstaklega auðvelt að stofna til meðmælasöfnunar fyrir forsetaframboð svo lengi sem maður stenst aldurskröfur. Í gær greindi Vísir frá því að Agnieszka Sokolowska, túlkur og verkefnastjóri af pólskum uppruna, hefði boðið sig fram. Síðan þá hefur heldur betur bæst í hópinn en þeir fjórir sem bættust við í dag eru: Oliver Þórisson, Ingvar Magnússon, Húni Húnfjörð og Búi Baldvinsson. Ekki hefur tekist að finna út úr því hvaða Ingvar Magnússon hefur boðið sig fram enda er nafnið býsna algengt. Nánar má lesa um hina þrjá frambjóðendurna hér fyrir neðan. Fyrrverandi körfuboltamaður í hjálparstarfi í Kenýa Húni Húnfjörð er fæddur árið 1977 og er menntaður viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum. Hann lék körfubolta á yngri árum með Keflavík og ÍR, hefur kennt viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri og hefur undanfarin ár unnið við að byggja upp skóla fyrir munaðarlaus börn í Kenýa. Húni skrifaði færslu um framboðið á Facebook-síðu sinni í morgun. Þar skrifaði hann „Forsetaframboð? Ég lofa að nota ne[i]tunarvaldið óspart. Forseta matarboðin verða flott og aldrei að vita nema þetta verði fyrsti forseti Íslands sem tengir við þig...þú sem ert að vakna.“ Húni Húnfjörð hefur starfað mikið í Kenýa undanfarin ár. Búi á Bessastaði Búi Baldvinsson er fæddur árið 1975 og starfar sem kvikmyndargerðarmaður. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri framleiðslufyrirtækisins Hero Productions. Hann hefur unnið að fjölda risastórra Hollywood-kvikmynda, þar á meðal Star Wars VII - The Force Awakens, The Secret Life of Walter Mitty, Noah og Stardust. Búi greindi líka frá framboði sínu á Facebook í dag. Þar skrifaði hann „Búi á Bessastaði hljómar eithvað svo fallega.“ Vilius Petrikas og Búi Baldvinsson.Vísir/Hulda Margrét Verslunarstjóri Subway í Reykjanesbæ Minna er vitað um Oliver Þórisson en hann er fæddur árið 1973 og hefur áður starfað sem verslunarstjóri hjá Subway í Fitjum í Reykjanesbæ.
Forsetakosningar 2024 Forseti Íslands Tengdar fréttir Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Forsetakosningar eru handan við hornið, þar sem þjóðin velur sér fyrsta nýja forsetann frá árinu 2016. Hér í vaktinni verður fylgst með öllum helstu vendingum í kapphlaupinu um Bessastaði næstu þrjá mánuði. 1. mars 2024 09:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Trump lofar að útrýma mótmælum til stuðnings Palestínu Erlent Notaði niðrandi orð um samkynhneigða karla á lokuðum fundi Erlent Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Innlent Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Innlent Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Innlent Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Innlent Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Innlent Börnin eru fundin Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Vill kvittanir frá framboði Höllu Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Háspennubilun í Breiðholti Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Soffía er nýr skólameistari FSu Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga Tveir bílar skullu saman í Kolgrafarfirði Ungmenni kveiktu í skólabókum Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Börnin eru fundin Heilablóðfall sjaldgæfur fylgikvilli eftir ósæðarlokuskipti Efling vísar deilu við borgina til sáttasemjara Stefnir í að losunarskuldbindingar náist Andrea Kristín enn dæmd í fangelsi Lending í Nauthólsvík lengi ferðina um korter til tuttugu mínútur Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Ástþór eyðir langmestu Kosningaúrslit yfirleitt nálægt niðurstöðum kannana „Þetta er bara eins og að finna gull“ Þyrlulæknar ósáttir og Ísfirðingar fagna heitavatnsfundi Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Taldir hafa sviðsett árekstur í Hafnarfirði Myndi ekki syrgja brotthvarf neftóbaksins Fluttur með þyrlu vegna vinnuslyss á bóndabæ Flugferð aflýst eftir að þjónustubíll rakst í flugvél Sjá meira
Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Forsetakosningar eru handan við hornið, þar sem þjóðin velur sér fyrsta nýja forsetann frá árinu 2016. Hér í vaktinni verður fylgst með öllum helstu vendingum í kapphlaupinu um Bessastaði næstu þrjá mánuði. 1. mars 2024 09:00