Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Samúel Karl Ólason skrifar 21. maí 2024 23:53 Donald Trump, var staddur í New York í dag. AP/Michael M. Santiago Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag vera opinn fyrir því að takmarka aðgengi Bandaríkjamanna að getnaðarvörnum og að framboð hans myndi brátt birta stefnuskjal um málefnið. Þetta sagði hann í sjónvarpsviðtali, skömmu áður en hann dróg í land og sagði að ummæli sín hefðu verið rangtúlkuð. Þetta var í fyrsta sinn sem Trump leggur til að hann sé að móta einhverskonar stefnu varðandi getnaðarvarnir frá því Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi stjórnarskrárvarinn rétt kvenna til þungunarrofs úr gildi. Síðan þá hefur mikil umræða um þungunarrof, getnaðarvarnir og tæknifrjóvganir átt sér stað í Bandaríkjunum. Þegar Hæstiréttur felldi rétt kvenna til þungunarrofs úr gildi skrifaði Clarence Thomas, einn sex dómara af níu sem skipaður var af forseta úr Repúblikanaflokknum, að dómstóllinn ætti að taka til endurskoðunar dómafordæmi sem tryggði rétt gifts fólks að getnaðarvörnum. Umræðan um getnaðarvarnir snýr að miklu leyti að svokallaðri „neyðarpillu“. Pillu sem konur geta tekið eftir kynmök til að koma í veg fyrir óléttu. Íhaldsmenn í Bandaríkjunum hafa víða reynt að koma í veg fyrir að konur geti pantað sér slíkar pillur í pósti. Eins og fram kemur í frétt New York Times óttast leiðtogar Repúblikanaflokksins að andstaða við getnaðarvarnir gæti komið niður á flokknum í kosningunum í nóvember. Framboð Joes Biden, forseta og mótframbjóðanda Trumps, stökk á ummælin og dreifði þeim á samfélagsmiðlum. Sarafina Chitika, talskona framboðsins, sagði einnig að konur víðsvegar um Bandaríkin hefðu þjáðst vegna þeirrar martraðar sem Trump hefði valdið, og var hún þar að vísa til áðurnefndrar ákvörðunar íhaldssamra dómara Hæstaréttar Bandaríkjanna. Hún sagði að ef Trump yrði aftur forseti væri ljóst að hann vildi ganga enn lengra og draga úr aðgengi fólks að getnaðarvörnum og þar á meðal neyðarpillunni. Q: Do you support any restrictions on a person’s right to contraception?Trump: We’re looking at that pic.twitter.com/ycrP7rCQL4— Biden-Harris HQ (@BidenHQ) May 21, 2024 Seinna í dag birti Trump færslu á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, þar sem hann sagði aldrei hafa komið til greina að takmarka aðgengi að getnaðarvörnum. Þetta væru einfaldlega „lygar Demókrata“ og falsfréttir. Þegar Trump var spurður út í afstöðu sína í garð takmarkana á því að senda neyðarpillur í pósti í viðtali þann 12. apríl, sagði Trump að hann hefði sterkar skoðanir á því máli og að framboð hans myndi gefa út yfirlýsingu á næstu tveimur vikum. Þann 27. apríl var hann spurður aftur og hét hann þá yfirlýsingu á næstu tveimur vikum en síðan eru liðnar þrjár vikur. Í svari við fyrirspurn frá blaðamönnum AP sögðu talsmenn framboðs Trumps að hann hefði ávallt verið hlynntur því að ákvarðanir um málefni sem þessi ættu að vera á höndum ráðamanna hvers ríkis Bandaríkjanna fyrir sig. Bandaríkin Donald Trump Joe Biden Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Þungunarrof Tengdar fréttir Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Verjendur Donalds Trump luku við að kalla til vitni í þagnargreiðslumálinu í New York í dag. Trump bar ekki vitni í málinu þrátt fyrir að hann hefði fullyrt að hann ætlaði sér „algerlega“ að gera það áður en réttarhöldin hófust. 21. maí 2024 15:04 „Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Bandaríski fáninn blakti á hvolfi við heimili hæstaréttardómara dagana eftir að stuðningsmenn Donalds Trump réðust á þinghúsið fyrir þremur árum. Slíkur fáni var tákn stuðningsmannanna sem höfnuðu úrslitum forsetakosninganna en mál sumra þeirra eru nú á borði réttarins. 21. maí 2024 09:39 Samið um kappræður í júní og september Joe Biden Bandaríkjaforseti og Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafa samþykkt að mætast í tveimur kappræðum fyrir forsetakosningarnar í nóvember. 16. maí 2024 07:09 Mest lesið Hjörvar fær gula spjaldið frá RÚV Innlent Svíkja milljónir af grandvaralausum Íslendingum í nafni Auðkennis Innlent Rassía lögreglu heldur áfram Innlent Ástand Íslendingsins sem lenti í nautinu sagt stöðugt Erlent Grunlaus eigandi dularfulls bíls fær hann ekki afhentan Innlent Viðvarandi kuldaskeið á Austurlandi í sumar Innlent Fyrrverandi starfsmaður Quang Le: „Hann er ekki velkominn hér“ Innlent Kennari í Breiðholti er Reykvíkingur ársins Innlent Jón sat hjá Innlent Ekki útlit fyrir neina hitabylgju á næstunni Innlent Fleiri fréttir Sinubruni ógnar einum uppáhaldsgolfvelli íslenskra ferðamanna Rutte næsti framkvæmdastjóri NATO Óttast að árásarmaðurinn flýi land Ástand Íslendingsins sem lenti í nautinu sagt stöðugt Vinsæll fjallvegur í Noregi lokaður út árið vegna grjóthruns Byltingarvörðurinn skilgreindur sem hryðjuverkasamtök Krefst fræðslu um gyðingahatur eftir að tólf ára stúlku var nauðgað Segir blekkingu að halda því fram að hægt sé að tortíma Hamas Banna fiskeldi í opnum kvíum við strendur Bresku-Kólumbíu Boðorðin tíu upp á vegg í öllum skólastofum í Louisiana Búa sig undir ákvörðun um stærsta mannvirki Færeyja Lífvörður Sunaks veðjaði á hvenær yrði kosið Ungur breskur maður týndur á Tenerife Lýtalæknir handtekinn hálfu ári eftir að eiginkonan lést eftir aðgerð Sprautuðu duftmálningu á Stonehenge Félagi í Norðurvígi grunaður um stunguárás á tólf ára dreng Nöfnum þéttbýliskjarna breytt til að þurrka út menningu Úígúra Kim lýsir yfir afdráttarlausum stuðningi við stríð Rússa í Úkraínu Stjórnvöld í Ísrael íhuga stríð gegn Hezbollah og Líbanon Telja lifrarbólgu E mögulega vera kynsjúkdóm Rúmlega 500 látnir vegna hita í Mekka Skilgreina Norðurvígi sem hryðjuverkasamtök McKellen heill á húfi Pútín heimsækir Kim Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Hyggjast einkavæða ríkismiðil Frakka Ian McKellen féll af sviði og var fluttur á sjúkrahús Netanjahú leysir stríðsráðið upp Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Sjá meira
Þetta var í fyrsta sinn sem Trump leggur til að hann sé að móta einhverskonar stefnu varðandi getnaðarvarnir frá því Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi stjórnarskrárvarinn rétt kvenna til þungunarrofs úr gildi. Síðan þá hefur mikil umræða um þungunarrof, getnaðarvarnir og tæknifrjóvganir átt sér stað í Bandaríkjunum. Þegar Hæstiréttur felldi rétt kvenna til þungunarrofs úr gildi skrifaði Clarence Thomas, einn sex dómara af níu sem skipaður var af forseta úr Repúblikanaflokknum, að dómstóllinn ætti að taka til endurskoðunar dómafordæmi sem tryggði rétt gifts fólks að getnaðarvörnum. Umræðan um getnaðarvarnir snýr að miklu leyti að svokallaðri „neyðarpillu“. Pillu sem konur geta tekið eftir kynmök til að koma í veg fyrir óléttu. Íhaldsmenn í Bandaríkjunum hafa víða reynt að koma í veg fyrir að konur geti pantað sér slíkar pillur í pósti. Eins og fram kemur í frétt New York Times óttast leiðtogar Repúblikanaflokksins að andstaða við getnaðarvarnir gæti komið niður á flokknum í kosningunum í nóvember. Framboð Joes Biden, forseta og mótframbjóðanda Trumps, stökk á ummælin og dreifði þeim á samfélagsmiðlum. Sarafina Chitika, talskona framboðsins, sagði einnig að konur víðsvegar um Bandaríkin hefðu þjáðst vegna þeirrar martraðar sem Trump hefði valdið, og var hún þar að vísa til áðurnefndrar ákvörðunar íhaldssamra dómara Hæstaréttar Bandaríkjanna. Hún sagði að ef Trump yrði aftur forseti væri ljóst að hann vildi ganga enn lengra og draga úr aðgengi fólks að getnaðarvörnum og þar á meðal neyðarpillunni. Q: Do you support any restrictions on a person’s right to contraception?Trump: We’re looking at that pic.twitter.com/ycrP7rCQL4— Biden-Harris HQ (@BidenHQ) May 21, 2024 Seinna í dag birti Trump færslu á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, þar sem hann sagði aldrei hafa komið til greina að takmarka aðgengi að getnaðarvörnum. Þetta væru einfaldlega „lygar Demókrata“ og falsfréttir. Þegar Trump var spurður út í afstöðu sína í garð takmarkana á því að senda neyðarpillur í pósti í viðtali þann 12. apríl, sagði Trump að hann hefði sterkar skoðanir á því máli og að framboð hans myndi gefa út yfirlýsingu á næstu tveimur vikum. Þann 27. apríl var hann spurður aftur og hét hann þá yfirlýsingu á næstu tveimur vikum en síðan eru liðnar þrjár vikur. Í svari við fyrirspurn frá blaðamönnum AP sögðu talsmenn framboðs Trumps að hann hefði ávallt verið hlynntur því að ákvarðanir um málefni sem þessi ættu að vera á höndum ráðamanna hvers ríkis Bandaríkjanna fyrir sig.
Bandaríkin Donald Trump Joe Biden Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Þungunarrof Tengdar fréttir Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Verjendur Donalds Trump luku við að kalla til vitni í þagnargreiðslumálinu í New York í dag. Trump bar ekki vitni í málinu þrátt fyrir að hann hefði fullyrt að hann ætlaði sér „algerlega“ að gera það áður en réttarhöldin hófust. 21. maí 2024 15:04 „Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Bandaríski fáninn blakti á hvolfi við heimili hæstaréttardómara dagana eftir að stuðningsmenn Donalds Trump réðust á þinghúsið fyrir þremur árum. Slíkur fáni var tákn stuðningsmannanna sem höfnuðu úrslitum forsetakosninganna en mál sumra þeirra eru nú á borði réttarins. 21. maí 2024 09:39 Samið um kappræður í júní og september Joe Biden Bandaríkjaforseti og Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafa samþykkt að mætast í tveimur kappræðum fyrir forsetakosningarnar í nóvember. 16. maí 2024 07:09 Mest lesið Hjörvar fær gula spjaldið frá RÚV Innlent Svíkja milljónir af grandvaralausum Íslendingum í nafni Auðkennis Innlent Rassía lögreglu heldur áfram Innlent Ástand Íslendingsins sem lenti í nautinu sagt stöðugt Erlent Grunlaus eigandi dularfulls bíls fær hann ekki afhentan Innlent Viðvarandi kuldaskeið á Austurlandi í sumar Innlent Fyrrverandi starfsmaður Quang Le: „Hann er ekki velkominn hér“ Innlent Kennari í Breiðholti er Reykvíkingur ársins Innlent Jón sat hjá Innlent Ekki útlit fyrir neina hitabylgju á næstunni Innlent Fleiri fréttir Sinubruni ógnar einum uppáhaldsgolfvelli íslenskra ferðamanna Rutte næsti framkvæmdastjóri NATO Óttast að árásarmaðurinn flýi land Ástand Íslendingsins sem lenti í nautinu sagt stöðugt Vinsæll fjallvegur í Noregi lokaður út árið vegna grjóthruns Byltingarvörðurinn skilgreindur sem hryðjuverkasamtök Krefst fræðslu um gyðingahatur eftir að tólf ára stúlku var nauðgað Segir blekkingu að halda því fram að hægt sé að tortíma Hamas Banna fiskeldi í opnum kvíum við strendur Bresku-Kólumbíu Boðorðin tíu upp á vegg í öllum skólastofum í Louisiana Búa sig undir ákvörðun um stærsta mannvirki Færeyja Lífvörður Sunaks veðjaði á hvenær yrði kosið Ungur breskur maður týndur á Tenerife Lýtalæknir handtekinn hálfu ári eftir að eiginkonan lést eftir aðgerð Sprautuðu duftmálningu á Stonehenge Félagi í Norðurvígi grunaður um stunguárás á tólf ára dreng Nöfnum þéttbýliskjarna breytt til að þurrka út menningu Úígúra Kim lýsir yfir afdráttarlausum stuðningi við stríð Rússa í Úkraínu Stjórnvöld í Ísrael íhuga stríð gegn Hezbollah og Líbanon Telja lifrarbólgu E mögulega vera kynsjúkdóm Rúmlega 500 látnir vegna hita í Mekka Skilgreina Norðurvígi sem hryðjuverkasamtök McKellen heill á húfi Pútín heimsækir Kim Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Hyggjast einkavæða ríkismiðil Frakka Ian McKellen féll af sviði og var fluttur á sjúkrahús Netanjahú leysir stríðsráðið upp Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Sjá meira
Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Verjendur Donalds Trump luku við að kalla til vitni í þagnargreiðslumálinu í New York í dag. Trump bar ekki vitni í málinu þrátt fyrir að hann hefði fullyrt að hann ætlaði sér „algerlega“ að gera það áður en réttarhöldin hófust. 21. maí 2024 15:04
„Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Bandaríski fáninn blakti á hvolfi við heimili hæstaréttardómara dagana eftir að stuðningsmenn Donalds Trump réðust á þinghúsið fyrir þremur árum. Slíkur fáni var tákn stuðningsmannanna sem höfnuðu úrslitum forsetakosninganna en mál sumra þeirra eru nú á borði réttarins. 21. maí 2024 09:39
Samið um kappræður í júní og september Joe Biden Bandaríkjaforseti og Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafa samþykkt að mætast í tveimur kappræðum fyrir forsetakosningarnar í nóvember. 16. maí 2024 07:09