Katrín gefur kost á sér Árni Sæberg skrifar 5. apríl 2024 13:06 Katrín Jakobsdóttir býður sig fram til forseta. Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér til embættis forseta Íslands. Katrín segir í yfirlýsingu að hún muni biðjast lausnar úr embætti forsætisráðherra og bjóða sig fram til forseta. Hún muni á næstu vikum ferðast um landið og tala við landsmenn um framtíðina. Hún segir alls ekki gefið að hún, sem hafi verið í stjórnmálum í tuttugu ár, bjóði sig fram til forseta. Hún hafi fyrir nokkuð löngu síðan ákveðið að hún myndi ekki gefa kost á sér í komandi Alþingiskosningum. Hún telji þó að hún geti áfram gert landi og þjóð gagn og því hafi hún ákveðið að bjóða sig fram til forseta. „Sú reynsla sem ég hef af stjórnmálum, reynslan af því að leiða saman ólíka hópa og sá skilningur sem ég hef öðlast á þeim tíma, gerir það að verkum að hún geti nýst vel í þessu embætti.“ Katrín tilkynnti framboð sitt í myndbandsfærslu á samfélagsmiðlum. Forsetinn þurfi að sýna forystu og auðmýkt Katrín segir að hún hafi undanfarið velt fyrir sér forsetaembættinu. Það sé mikilvægt embætti. Forsetinn þurfi að skilja gangverk stjórnmála og samfélags, hann þurfi að geta sýnt forystu og auðmýkt, hann þurfi að gæta hagsmuna Íslands á alþjóðavettvangi, hann þurfi að geta tekið erfiðar ákvarðanir, óháð stundarvinsældum, hann þurfi að geta talað til þjóðarinnar allrar. „Enda verður ekki af honum tekið að hann er kosinn af þjóðinni.“ Risastórar áskoranir framundan Katrín segir okkur stödd á flóknum tímum. Stríðsátökum hafi fjölgað í heiminum. Við stöndum frammi fyrir risastórum áskorunum á sviði loftslags og umhverfismála. Tækniþróunin sé á slíkum hraða að annað eins hefur ekki sést og aldrei hafi verið mikilvægara að efla og gæta mennskunni. „Á slíkum tímum þurfum við að horfa á undirstöðurnar, menntun og menningu. Þurfum að tryggja íslenska tungu sem er okkar rótfesta, en á sama tíma þurfum við að standa vörð um fjölbreytnina sem einkennir íslenskt samfélag. Í öllum þessum málum hefur forsetinn hlutverki að gegna, að tala skýrt fyrir þeim grunngildum sem við byggjum íslenskt samfélag á, lýðræði, mannréttindum og réttarríkinu. Bæði hér heima og á alþjóðavettvangi.“ Fréttin hefur verið uppfærð. Forsetakosningar 2024 Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Vinstri græn Alþingi Forseti Íslands Tengdar fréttir Bein útsending: Katrín situr fyrir svörum Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, veitir fjölmiðlum viðtöl í Hörpu klukkan 14. 5. apríl 2024 13:49 Katrín búin að taka ákvörðun og upplýsa ríkisstjórn Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins segir Katrínu hafa greint ríkisstjórn frá ákvörðun sinni. Það sagði hann að loknum ríkisstjórnarfundi. Forsætisráðherra muni sjálf tilkynna um ákvörðun sína. 5. apríl 2024 12:15 Katrín eigi næstu klukkustundir í opinberri umræðu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármála- og efnahags segir ríkisstjórnarfundinn sem var að ljúka hafa verið nokkuð hefðbundinn. Það hafi verið farið yfir mörg mál. 5. apríl 2024 11:49 „Það er ákveðið óvissustig núna“ Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að möguleg ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands, hafi ekki verið til formlegrar umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun. 5. apríl 2024 11:55 Katrín vildi engum spurningum svara Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra yfirgaf ríkistjórnarfund morgunsins án þess að gefa sér tíma til að svara spurningum fjölmiðla varðandi líklegt forsetaframboð sitt. Hún sagðist vera á leið í stjórnarráðið og myndi ræða við fjölmiðla síðar í dag. 5. apríl 2024 11:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vænir stangveiðimenn um dýraníð og utanvegaakstur Innlent Segir íbúa Reykjanesbæjar búa við ógn vegna fjölda hælisleitenda Innlent Segir stjórnarandstöðuna hafa kynt undir hatri árásarmannsins Fréttir Friðjón svarar Steinunni fullum hálsi Innlent Meirihlutinn í Suðurnesjabæ klofinn Innlent Vita ekki hvar tvö þúsund skotvopn eru niðurkomin Innlent Sorg í Neskaupstað vegna andláts barns Innlent Rafmagn komið á í Grindavík Innlent Fiskikóngurinn segir atvinnurekendur aumingja Innlent „Var þetta í alvöru nafnið mitt sem þau kölluðu?“ Innlent Fleiri fréttir Vænir stangveiðimenn um dýraníð og utanvegaakstur Rafmagn komið á í Grindavík Meirihlutinn í Suðurnesjabæ klofinn Segir íbúa Reykjanesbæjar búa við ógn vegna fjölda hælisleitenda Mikilvæg mál föst vegna „störukeppni“ ríkisstjórnarinnar Sinubruni í Gufunesi Ungmenni séu byrjuð að átta sig á slæmum afleiðingum klámáhorfs Stefnubreyting í fjármögnun borgarinnar Friðjón svarar Steinunni fullum hálsi „Fróðleiksfúsi“ slær í gegn í Sandgerði Vita ekki hvar tvö þúsund skotvopn eru niðurkomin Sinubruni í Staðarsveit á Snæfellsnesi Hætta rannsókn banaslyssins í Óshlíð Horfin skotvopn, óveður og píanósnillingur í beinni Vill skýringar á seinum svörum Orkustofnunar Ósætti í Suðurnesjabæ vegna staðsetningar gervigrasvallar Mætti manni, veitti honum eftirför og réðst svo á hann Fimmtán milljarða króna lántaka borgarinnar samþykkt Viðreisn býðst til að bjarga lögreglufrumvarpi dómsmálaráðherra Mál Vals fellt niður sem Heilsuvernd segir hafa verið storm í vatnsglasi Brynjar grætur ekki fylgistap Vg sem hann segir þeim sjálfum að kenna Innrituðu sig á Akureyri í morgun en fljúga frá Keflavík Fólki bjargað á landi sem sjó „Var þetta í alvöru nafnið mitt sem þau kölluðu?“ Fannst yfirgefin tveggja daga gömul en lifir góða lífinu í dag Sigurður kjörinn varaforseti Hæstaréttar Sorg í Neskaupstað vegna andláts barns Fjárhagslegt högg fyrir björgunarfélagið að missa flugeldasýninguna Hefði verið auðvelt að koma í veg fyrir banaslysið Vonda veðrið kemur á versta tíma fyrir hryssur Sjá meira
Katrín segir í yfirlýsingu að hún muni biðjast lausnar úr embætti forsætisráðherra og bjóða sig fram til forseta. Hún muni á næstu vikum ferðast um landið og tala við landsmenn um framtíðina. Hún segir alls ekki gefið að hún, sem hafi verið í stjórnmálum í tuttugu ár, bjóði sig fram til forseta. Hún hafi fyrir nokkuð löngu síðan ákveðið að hún myndi ekki gefa kost á sér í komandi Alþingiskosningum. Hún telji þó að hún geti áfram gert landi og þjóð gagn og því hafi hún ákveðið að bjóða sig fram til forseta. „Sú reynsla sem ég hef af stjórnmálum, reynslan af því að leiða saman ólíka hópa og sá skilningur sem ég hef öðlast á þeim tíma, gerir það að verkum að hún geti nýst vel í þessu embætti.“ Katrín tilkynnti framboð sitt í myndbandsfærslu á samfélagsmiðlum. Forsetinn þurfi að sýna forystu og auðmýkt Katrín segir að hún hafi undanfarið velt fyrir sér forsetaembættinu. Það sé mikilvægt embætti. Forsetinn þurfi að skilja gangverk stjórnmála og samfélags, hann þurfi að geta sýnt forystu og auðmýkt, hann þurfi að gæta hagsmuna Íslands á alþjóðavettvangi, hann þurfi að geta tekið erfiðar ákvarðanir, óháð stundarvinsældum, hann þurfi að geta talað til þjóðarinnar allrar. „Enda verður ekki af honum tekið að hann er kosinn af þjóðinni.“ Risastórar áskoranir framundan Katrín segir okkur stödd á flóknum tímum. Stríðsátökum hafi fjölgað í heiminum. Við stöndum frammi fyrir risastórum áskorunum á sviði loftslags og umhverfismála. Tækniþróunin sé á slíkum hraða að annað eins hefur ekki sést og aldrei hafi verið mikilvægara að efla og gæta mennskunni. „Á slíkum tímum þurfum við að horfa á undirstöðurnar, menntun og menningu. Þurfum að tryggja íslenska tungu sem er okkar rótfesta, en á sama tíma þurfum við að standa vörð um fjölbreytnina sem einkennir íslenskt samfélag. Í öllum þessum málum hefur forsetinn hlutverki að gegna, að tala skýrt fyrir þeim grunngildum sem við byggjum íslenskt samfélag á, lýðræði, mannréttindum og réttarríkinu. Bæði hér heima og á alþjóðavettvangi.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Forsetakosningar 2024 Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Vinstri græn Alþingi Forseti Íslands Tengdar fréttir Bein útsending: Katrín situr fyrir svörum Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, veitir fjölmiðlum viðtöl í Hörpu klukkan 14. 5. apríl 2024 13:49 Katrín búin að taka ákvörðun og upplýsa ríkisstjórn Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins segir Katrínu hafa greint ríkisstjórn frá ákvörðun sinni. Það sagði hann að loknum ríkisstjórnarfundi. Forsætisráðherra muni sjálf tilkynna um ákvörðun sína. 5. apríl 2024 12:15 Katrín eigi næstu klukkustundir í opinberri umræðu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármála- og efnahags segir ríkisstjórnarfundinn sem var að ljúka hafa verið nokkuð hefðbundinn. Það hafi verið farið yfir mörg mál. 5. apríl 2024 11:49 „Það er ákveðið óvissustig núna“ Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að möguleg ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands, hafi ekki verið til formlegrar umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun. 5. apríl 2024 11:55 Katrín vildi engum spurningum svara Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra yfirgaf ríkistjórnarfund morgunsins án þess að gefa sér tíma til að svara spurningum fjölmiðla varðandi líklegt forsetaframboð sitt. Hún sagðist vera á leið í stjórnarráðið og myndi ræða við fjölmiðla síðar í dag. 5. apríl 2024 11:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vænir stangveiðimenn um dýraníð og utanvegaakstur Innlent Segir íbúa Reykjanesbæjar búa við ógn vegna fjölda hælisleitenda Innlent Segir stjórnarandstöðuna hafa kynt undir hatri árásarmannsins Fréttir Friðjón svarar Steinunni fullum hálsi Innlent Meirihlutinn í Suðurnesjabæ klofinn Innlent Vita ekki hvar tvö þúsund skotvopn eru niðurkomin Innlent Sorg í Neskaupstað vegna andláts barns Innlent Rafmagn komið á í Grindavík Innlent Fiskikóngurinn segir atvinnurekendur aumingja Innlent „Var þetta í alvöru nafnið mitt sem þau kölluðu?“ Innlent Fleiri fréttir Vænir stangveiðimenn um dýraníð og utanvegaakstur Rafmagn komið á í Grindavík Meirihlutinn í Suðurnesjabæ klofinn Segir íbúa Reykjanesbæjar búa við ógn vegna fjölda hælisleitenda Mikilvæg mál föst vegna „störukeppni“ ríkisstjórnarinnar Sinubruni í Gufunesi Ungmenni séu byrjuð að átta sig á slæmum afleiðingum klámáhorfs Stefnubreyting í fjármögnun borgarinnar Friðjón svarar Steinunni fullum hálsi „Fróðleiksfúsi“ slær í gegn í Sandgerði Vita ekki hvar tvö þúsund skotvopn eru niðurkomin Sinubruni í Staðarsveit á Snæfellsnesi Hætta rannsókn banaslyssins í Óshlíð Horfin skotvopn, óveður og píanósnillingur í beinni Vill skýringar á seinum svörum Orkustofnunar Ósætti í Suðurnesjabæ vegna staðsetningar gervigrasvallar Mætti manni, veitti honum eftirför og réðst svo á hann Fimmtán milljarða króna lántaka borgarinnar samþykkt Viðreisn býðst til að bjarga lögreglufrumvarpi dómsmálaráðherra Mál Vals fellt niður sem Heilsuvernd segir hafa verið storm í vatnsglasi Brynjar grætur ekki fylgistap Vg sem hann segir þeim sjálfum að kenna Innrituðu sig á Akureyri í morgun en fljúga frá Keflavík Fólki bjargað á landi sem sjó „Var þetta í alvöru nafnið mitt sem þau kölluðu?“ Fannst yfirgefin tveggja daga gömul en lifir góða lífinu í dag Sigurður kjörinn varaforseti Hæstaréttar Sorg í Neskaupstað vegna andláts barns Fjárhagslegt högg fyrir björgunarfélagið að missa flugeldasýninguna Hefði verið auðvelt að koma í veg fyrir banaslysið Vonda veðrið kemur á versta tíma fyrir hryssur Sjá meira
Bein útsending: Katrín situr fyrir svörum Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, veitir fjölmiðlum viðtöl í Hörpu klukkan 14. 5. apríl 2024 13:49
Katrín búin að taka ákvörðun og upplýsa ríkisstjórn Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins segir Katrínu hafa greint ríkisstjórn frá ákvörðun sinni. Það sagði hann að loknum ríkisstjórnarfundi. Forsætisráðherra muni sjálf tilkynna um ákvörðun sína. 5. apríl 2024 12:15
Katrín eigi næstu klukkustundir í opinberri umræðu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármála- og efnahags segir ríkisstjórnarfundinn sem var að ljúka hafa verið nokkuð hefðbundinn. Það hafi verið farið yfir mörg mál. 5. apríl 2024 11:49
„Það er ákveðið óvissustig núna“ Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að möguleg ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands, hafi ekki verið til formlegrar umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun. 5. apríl 2024 11:55
Katrín vildi engum spurningum svara Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra yfirgaf ríkistjórnarfund morgunsins án þess að gefa sér tíma til að svara spurningum fjölmiðla varðandi líklegt forsetaframboð sitt. Hún sagðist vera á leið í stjórnarráðið og myndi ræða við fjölmiðla síðar í dag. 5. apríl 2024 11:57